Eiríkur Örn Norðdahl
X. [Er teikning til af sveltandi barni]
X. [Er teikning til af sveltandi barni]
Er teikning til af sveltandi barni
taktu afrit af rifjahylkjum
nætursöltuð strjúpagrjón
fleygðu innkaupalistum í bremsuförin og geisp
hvernig Ísland getur orðið ríkasta land í heimi
á meðan enn eru fiskar á krónunni
Starfsmenn Stjórnarráðsins hafa nú
fengið sér að borða og samkvæmt
blaðamanni á staðnum má álykta út frá
lyktinni að það sé Kínamatur